21. mars 2007 klukkan 23:03
Hvað er fullt nafn mitt?
Hvenær á ég afmæli?
Hvernig hittumst við ?
hvað fannst þér um mig þegar við hittumst?
Hvenær hittumst við seinast?
Hvað er uppáhalds:
-maturinn minn?
-hljómsveitin mín?
-kaffihúsið mitt?
-dagurinn minn?
Hvernig myndir þú lýsa mér í 3 orðum?
Hvar á ég heima?
Höfum við kysst?
erum við góðir vinir?
hef ég treyst þér fyrir leyndarmáli? og þá hvaða leyndarmáli?
á ég :
-dýr?
-barn?
-ipod?
-bíl?
-íbúð?
Hernig eru augun mín á litinn?
Höfum við farið á trúnó?
Hefuru séð mig gráta?
höfum við farið í ferðalag saman?
höfum við farið á tónleika saman?
veistu við hvað ég vinn?
er ég í skóla?
hvaða líkamshluti á mér er sérstakastur?
hvaða árstími finns mér skemmtilegastur?
ef þú myndir festast með mér á eyðieyju í nokkra daga, hvaða tvo hluti myndir þú taka með?
ef ég myndi hringja í þig og biðja þig um að hitta mig og gera eitthvað, hvar myndum við hittast og hvað myndum við gera?
hvað finnst mér alveg rosalega skemmtilegt að gera?
ef þú myndir koma mér á óvart hvað myndir þú gera fyrir mig ?
hver er besti vinur minn?
hver er besta vinkona mín?
hvað er uppáhalds drykkurinn minn?
viltu að ég svari þessu líka fyrir þig ?
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
12. mars 2007 klukkan 14:19
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
06. febrúar 2007 klukkan 03:25
* Fór heim um helgina á þorrablótið, það var rosa gaman og gaman að hitta alla aftur :)
* nikkukennarinn er að reyna fá mig til að ganga í harmonikkufélag reykjavíkur, þar er víst hópur sem að hittast tvisvar ímánuði og þá eru sona þrjátíu - fjörtíu harmonikku sem spila saman, örugglega rosa gaman :) Kannski fer í þetta þótt ég stoppi bara stutt í bænum :)
* Annars er bara voða fínt í skólanum og sona
Ooog ég nenni að segja neitt......
Solla: þú ert komin á listann
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
22. janúar 2007 klukkan 03:10
* Það er æðislegt að vera hérna í skólanum, rosa gaman bara
* Fór á best djamm í heymi í gærkvöldi og þar á undan fór ég líka með Hörpu, geðveikt helgi

* Nenni annars ekkert að skrifa, en setti fullt af myndum inn... mikið meira gaman af þeim

Endilega kíkið *LiLjA*
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
13. janúar 2007 klukkan 18:10
jæja þá er komið að því..... ég flyt á morgun



Hlakka mikið til... mamma ætlar að koma mað mér og skoða gamla skólann sinn svo ætlum við að taka okkur göngu um svæðið svo ég rati svona einhvað pínu

Ég pakkaði öllum fötunum mínum oní stóra ferðatösku í vikunni og Týra nýtt sér það.... verð ð sýna ykkur myndina :)

Bara sæt :) hehe
Er annars bara búin að vera hanga hérna heima með mömmu... spilaði fyrir gamla fólkið á sjúkrahúsinu í vikunni og það var voða gaman :)
Sótti um vinnu í gær á dýraspítala í Rvk... er ekki búin að fá svar en mér var sagt að það væri alls ekki ólíklegt að ég fengi vinnu.... það væri náttla bara best:) hvar ég mun búa er svo bara seinni tíma vandamál ef ég fæ vinnu

En jamm.... ég á eftir að sakna hennar Týru minnar svo mikið.... og náttla mömmu og Erling, Guðrúnu systur, sollu, fjölskyludnni á Lindarbergi, ömmu. En í staðinn get ég umgengist fólk sem ég hef alltaf getað umgengist lítið :) ömmur og afar, alda og emilía systur mínar, Steinunn, Harpa, Hrafnhildur, Nonni litli, Þórður og Ivan... og svo kynnist maður náttla fullt af fólki vonandi

Bið bara að heilsa ykkur, veit ekki hversu mikið ég mun blogga, veit ekki hvort ég verð með netið en það kemur í ljós bráðum :)
*LaTeR*
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
07. janúar 2007 klukkan 05:03
Þá er maður loksins búinn að kaupa nýja myndavél... er rosa ánægð með hana og búin að taka mikið af myndum síðustu tvo daga... setti inn dáldið af myndum sona ef ykkur langar að skoða, þær eru úr afmælinu hennar ömmu, hún varð 65.ára í dag, svo einhverfumyndir sem ég var að taka kvöldið sem ég fékk vélina og myndir sem við guðrún vorum að leika okkur að taka í dag

Hef annars lítið að segja... fer á krókinn á morgun til að koma heim aftur.. mjög skrítið, ætla fara með að keyra guðrúnu :)
Spila á nikkuna fyrir gamla fólkið á sjúkrahúsinu á þriðjudaginn. Annars er ekkert í stafni fyrr en ég fer suður þann fjórtána janúar :)
En jamm... endilega kíkið á myndir ;)
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
02. janúar 2007 klukkan 23:52
* Jólin og áramótin voru voða fín.... borðaði geðveikt mikið af góðum mat, svo toppar ekkert machintoshið :D mamma læsti það inní bílskúr milli jóla og nýárs svo ég myndi ekki klára það
* Fór með sollu á áramótadiskó í félagsheimilinu á gamlárskvöld... það vaar frekar slappt, fór bara snemma heim að sofa
* Fer annars bráðlega suður, 12 dagar :) fer 14 og skólinn verður svo settur 15 jan :) farið að hlakka voða til... leið á vera heima og ekki í neinni vinnu eða neinu. Mun reyndar sakna Týru alveg ógurlega mikið

og hinna náttla líka

* Nenni samt ekki að blogga frekar en alltaf.... en henti inn nokkrum myndum frá jólunum og áramótunum!
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
21. desember 2006 klukkan 19:45
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
11. desember 2006 klukkan 18:55
Síðasta rútuferðin var í gær, síðasta nóttin verður í nótt, síðasta prófið á morgun, síðasti lærdagurinn í dag, síðasta tiltektin á morgun... ég elska lífið

Húsó byrjar ekki fyrr en 15.jánúar, allt of seint, veit ekki hvað ég geri þangað til. Fyrst tónlistartíminn er samt 9.jan, hugsa að ég verði bara að sleppa honum.
Annars hefur ekkert gerst, tíkin klóraði næstum úr mér augað um helgina, einhvernvegin kemst hún svo oft inn í herbergið mitt á morgnana og fer að klappa mér í framan, fattar ekki að hún er með klær.. ekki besta leiðin til að vakna

eeen maður fyrirgefur Týru nú allt

Nágrannar.... :)
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir
07. desember 2006 klukkan 02:23
* Jæja þá er bara eitt próf eftir... uppeldisfræði sem er ekki fyrr en á þriðjudaginn

gekk held ég alveg ágætlega í prófunum og er búin að fá að vita að ég náði ensku

náði vonandi öllu hinu bara líka !!
* Fer heim á morgun og þá verður bara chillað, þarf ekkert að byrja læra í upp fyrr en á mánudaginn

* Svo styttist óðum í suðurferðina okkar sollu.... það verður alveg dúndurgaman :D vona að Harpa geti hitt okkur og sóley verði með okkur líka

* ætlaði annars bara sona aðeins að skella inn ienu bloggi



* Var að setja inn myndir í *vinir* ef það er ekki mynd af ykkur þar er það vegna þess að ég á enga og þá megiði endilega senda mér ;) danke

* Var líka að breyta í *um mig* kíkja
Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir